Tékkland bifreiðaskoðun í Hátúni 2A er staðsett við hliðina á Hvítasunnukirkju Fíladelfíu fyrir neðan Laugaveg. Um áratugaskeið var Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns til húsa í þessu húsnæði.
Þetta er stærsta stöð Tékklands með tveimur skoðunarbrautum, annars vegar lyftubraut og hins vegar gryfjubraut. Frábær móttaka fyrir viðskiptavini sem geta notið þeirrar þjónustu sem er í boði á meðan bíllinn er skoðaður.
Ástandsskoðanir eru eingöngu framkvæmdar í skoðunarstöð okkar í Hátúni. Hafið samband við afgreiðslu okkar til að panta tíma, oftast er hægt að komast að samdægurs.
ÞJÓNUSTA
- Bifreiðaskoðun < 3,5t
- Bifreiðaskoðun > 3,5t
- Bifhjólaskoðun
- Skoðun ferða- og eftirvagna